jæja hverjum hafi dottið í hug að ég myndi fara aftur í
sveitina...........hummmm??? þetta er bara svo frábær staðurað ég
get ekki lýst því þetta er mitt svona "heim" ég hef haft alltof of
mörg heim en þetta er svona heim heim!!!!
en já ég kom hingað í fyrradag um 8 leitið og for svo um 9 að
gefa heimalingunum með ömmu og niðrá tún að skipta um rúllu og svo
fórum við uppá Grund og sóttum mold og fórum að bera á beðin hjá
okkur. ég er bara komin með blöðru á að moka svona. svo við
tækifæri ætla ég að fara niðri fjárhús og moka skít og bera á
beðin.
það er svo gaman að gera eithvað svona í garðinum,hjálpa
ömmu sem er alveg að fara detta niður dauð af vinnu, vona að það
verði samt ekki í bráð
svo í gær vaknaði ég fyrir 8 og fór að vinna, langt síðan ég hef
vaknað svona snemma.svo um 4 þá fór ég heim og var eithvað að
skottast og fór svo á hestbak á feita rauð. kikti svi í sund með
ömmu og hlustaði á allar slúður sögurnar í pottinum. svo var haldið
heim á leið og ég tók ömmu gjörsamlega í gegn bar felden gel á
hendurnar á henni því hun er með svo mikla slitgigt og nuddaði þá
voða vel bar felden líka á hnéin á henni og bar svo á fæturnar og
tók svo bakið og agslirnar og var ekkert voðalega mjúkhent þar
hun lág alveg í móki
sumir hugsa kanski oj bera á fæturnar, en mér finnst þetta bara
það eðlilegasta í heimi og er bara að spá í að fara í snirtifræði í
haust eða sjúkraliðann þetta tvent heillar mig mjög! er bara ekki
búin að gera upp hug minn en held samt að það verði
snyrtifræðin
bæ ðe vei er að drepast ur harðsperum!!!!!! just
shering.
hey það er verið að taka upp mynd herna á reykhólum!!!!! það á
að vera um svona kosningu og fjallar um eithvern mann sem á að vera
að flytja kjörkassa í talningu og það var ein saga sem ég heyrði í
pottinum í gær sem var nu saga til næsta bæjar:
Sýslumaðurinn á patró var að koma í sínar reglulegar heimsókn á
reykhóla og var að keyra yfir Hjallarhálsinn og sér bíl
útívegkannti og stoppar bílinn og ákveður að fara og gá hvort allt
væri í lagi, hann gengur að bílnum og það er enginn hræða í bílnum
nema bara einn innsiglaður kjörkassi og þá verður upp fótur og fit
og sýslumaðurinn hringir í lögregluna og lætur vita þá var búið að
láta lögguna vita og sagði sýslumanninum að þetta væri bara
leikmunur, en þakkaði samt fyrir að láta vita.
pælið í því ef það hafi gleimst að telja úr heilum
kjörkassa!!!!!
það yrði allt vitlaust!!!!!! hehehe 
en allavegana þá hef ég nóg að gera hér og fólkið á Barmahlíð er
mjög ánægt að fá mig og amma og afi og já Huldufólkið er á leiðinni
(hulda sko
) ég hlakka til 
hey nenni ekki að pikka meir bæ